Sider

mandag 8. november 2010

Julemagasinet er udkommet..

Jeg tænkte på at kigge ind i narvesen i dag og se om Jeanne d´arc magasinet var udkommet selv om det først skulle være i handelen den 12., og ja det var det - så nu kan jeg hugge lidt med juleinspiration.

Datt í hug að kíkja í blaðabúðina hér í nágrenninu þegar ég átti leið hjá í dag og athuga hvort blaðið mitt, jólablaðið, væri komið út. Og já, þær eru sennilega að bæta upp fyrir að hafa verið of seinar síðast, því blaðið átti fyrst að koma út þann 12. Nú get ég huggað mig aðeins og planað jólin enn betur.

hafið það sem best og takk fyrir kommentin, þau ylja hér í kuldanum!

søndag 7. november 2010

Stollen ...


Stollen julebrød er en af de ting der simpelhen er nødvendige før hver jul. For nogle år siden, da jeg boede i Danmark, fandt jeg en bog på biblioteket som hed Politikens bog om vinter og jul. Den er helt fantastisk - da jeg så skulle købe den, var den helt udsolgt og åbenbart har de ikke udgivet den igen endnu, for den er stadig udsolgt. MEN den findes på svensk og fordi jeg er sådan set lige glad med hvilket nordisk sprog jeg læser - udover finsk selvfølgelig - bestilte jeg den i morges på capris. Nu skal jeg nemlig til at prøve om jeg kan finde ud af at lave et peperkagehus - det vil vise sig. Men jeg fik sådant lysten til stollen da jeg så bogen - min stollenopskrift stammer netop derfra. Stollen med Grand mariner blev det til- intet koniak her i huset!

Fann loksins bókina sem mig er búið að langa í í fleiri fleiri ár en hefur verið uppseld í Danmörku. Auðvitað er hún sænsk og heitir Vinterens goda ting og er algjörlega bráðnauðsynleg að eiga . Þaðan kemur stollenuppskriftin sem ég nota. Varð því að baka mér stollen í morgun - en nú með grand á ekki koníak, en það kemur ekki að sök get ég tjáð ykkur. búin að háma í mig þannig að ekki grennist ég í dag ;=)
Et must have!

Man skal give sig god tid til denne brød.
Alt klart nu er det bare at blande det sammen.

Allt hakkað og klárt tilbúið í blöndun!

Det hæves et par timer og så en time til når dejen er formet.

Brauðið hefast í svona um 3 klst samtals!
Enga óþolinmæði hér
Men så dejligt når det står spiseklart.

Algjör dásemd þegar það loksins er tilbúið!
Er eitthvað jólalegra en fallegt stollenbrauð?

Hafið það gott
og ekki vera hrædd við að setja komment, ég bít ekki í gegnum tölvuna ;=)

lørdag 6. november 2010

Huggulegheit á laugardagskvöldi!

Lørdagaften og hygge, har fyret op i pejsen og maden venter på bordet. Nu skal vi hygge og kose os lidt. Lavede en lille krans af falmende efterårs blade i morges. Dem har vist nok af - nu for tiden.

Ha´det godt!

Það á að hafa það notarlegt hér í kvöld. Búið að kveikja upp í arninum, frúin alveg sjálf og það logar skært! Maturinn bíður, maðurinn líka, var að koma heim úr vinnu. Best að gefa honum að borða og kósa sig svo. Gerði smá krans í morgun úr haustlaufum, það er víst nóg af þeim núna.

Vona að allir eigi huggulegt kvöld!
Er þetta ekki bara huggulegt?

Ekki fæ ég hreindýrahaus yfir arininn, eins og ég svo mjög gjarnan vildi.
EN þessi 2 voru svo sæt, eru nú hugsuð á aðventubakkann en punta þarna þangað til!

Það er hér sem við huggum okkur litla fjölskyldan.
Ekkert er gestaherbergið, en gestarúm í stofunni.
Mjög sniðugt verð ég að segja að hafa rúm í stofunni.
Það kvartar amk enginn hér heima.

fredag 5. november 2010

Lampi og stóll!

Det at jeg har en svaghed for patina er ikke nogen hemmelighed. Kunne derfor ikke modstå denne ensomme stol i bruktbutikken. Industri-lampen er en nødvendighed hvis man overhoved skal kunne strikke eller lave et eller andet om aftenen, uden oversvømmelse belysning.

ha´en dejlig god helg


Það virðist loða við mig að búa við annað hvort flóðlýsingu eða myrkur. En ekki lengur. Eftir að hafa setið í 2 og hálft ár í myrkri öll kvöld á Íslandi og ergja mig yfir því að geta ekki prónað, ákvað ég strax og ég flutti hingað inn að hér skyldi ég eiga mér almennilegan prjónalampa.

Bóndinn fékk val, annað hvort byggi hann við flóðlýsingu á kvöldin eða ég keypti mér lampa. Keyptu þér lampa, var svarið! Og ég gerði það, notaðan industri lampa sem þolir heil 500 wött, í smá stund amk. Hann get ég hækkað og lækkað að vild og snúið skerminum í allar áttir. Enda prjóna ég meira á kvöldin núna! þ.e. þegar hausinn leyfir.
Og stóllinn, ja, við höfm búið við stólavandamál undanfarna mánuði. En ekki lengur. Eins og ég er veik fyrir stólum hef ég bara ekki fundið neinn, nema 2 um daginn og svo þessa elsku. Eldgamall sænskur stóll sem greinilega hefur upplifað sitt lítið af hverju !

góða helgi

Það besta er að hann passar alveg fullkomlega við hina 2 stólana mína.
Ég er voða mikið fyrir að blanda saman, en það er ekki sama hvernig það er gert.
Vist er den fin!


torsdag 4. november 2010

Sending af himnum ofan!

Gårdagens kup, en stor hvid engelsk terrin fra ca 1914 til... 100kr. Ja, det er sandt. Jeg har set at på nettet bliver de solgt til 500-1300 kr, men handler man hos nogle ældre herrer som ikke lige læser vores blog og ikke helt har samme smag, kan man godt være heldig. Den mangler godt og vel et låg men ud over den intakt. Jeg er i hvert fald super glad for den.

Ha´en god dag.

Það var einhver svo góður að banka í öxlina á mér í gær og segja mér að flýta mér til kallana sem selja svona ýmsilegt smátt og gott og fullt af drasli. Ég þrætti nú smá við röddina í höfðinu, en vitandi það að ég hef oft séð eftir því lét ég undan og fór. OG HVAÐ BEIÐ MÍN?
Jú, þessi yndisfagra enska terrina frá um 1914 eftir merkinu og verðið? Aðeins 100 nkr, sem er ekki neitt því þær eru sko dýrar þessar, amk hjá þeim sem vit hafa á.

Full af möndlum sem maður kaupir í lausu hér á amk helmingi lægra verði en ella!

Juleforberedelserne så smådt i gang, med masser af mandler,
og verdens bedste julebog.

Jólaundirbúningur hafinn, búin að draga fram bestu jólabók í heimi,
og byrgja mig upp af möndlum.
Kaffivélin komin í gang aftur.
Er búin að vera latte-laus í rúma viku!!
Það er laaaangur tími, fyrir Dagnýju.

Ég fór eiginlega út til að kíkja á stóla á litlu kaffihúsi þar sem allt er til sölu,
kannski nema kaffivélin. Fann enga stóla, en stóðst ekki þessi litlu staup.
Silfurplett líka ensk.

Maður verður nú að staupa sig með stæl!
20kall stykkið, það þykir mér ekki mikið.
Þannig að ef einhvern langar í kaffi og Grand þá er bara að banka uppá hjá mér!

Hafið það sem best og takk fyrir að kíkja í heimsókn.


onsdag 3. november 2010

Lidt fra soveværelset


Vores nuværende soveværelse er så lille at der kan næsten kun være sengen. Men min lille ollemorsskap kunne lige passe og fik være derinde et stykke tid. Der ovenpå har jeg min første gamle spejl, den var simpelhen ikke til at modstå, så endelig har min smukke jesus fået end værdig og passende baggrund.

Smá sýnishorn frá okkar pínu oggu ponsu svefnherbergi. Það kemst lítið annað en rúmið inn. EN það var rétt svo pláss fyrir litla langömmuskápinn minn milli rúmsins og innbyggða skápsins, sem líka er mjög lítill.
Rúmteppið var ég svo heppin að finna í búð sem var að loka og fékk það á 70% afslætti.

Spegilinn elska ég meira en allt annað, kannski fyrir utan mann og barn ;=)
EN ég stóðst hann bara enganveginn.
Var búin að fara aftur og aftur og skoða hann.
Hugsa málið í viku, ætlaði ekkert að kaupa hann EN hann fór ekki úr huga mér,
svo í dag er hann minn.

Hann er hinn fullkomni bakgrunnur fyrir fallegasta Jesú sem ég hef séð!
Heppin ég að hann er líka minn .
Þessi mynd heppnaðist það vel að ég valdi hana sem forsíðumynd.
Ég á ekki almennilega myndavél þannig að ég prísa mig sæla
þegar hún óvart tekur almennilegar myndir.
Þannig að ég neyðist stundum að styðjast við gimp, en ekki í þetta sinn.

Er þetta ekki dásamlegasta patinering sem til er í heiminum.
Svona eiga speglar að vera.
Reyndar sáu systir mín og mágur bara ónýtan spegil,
en þetta er fallegasti spegill í heimi að mínu mati.

Nokkrar bækur sem ég keypti á loppemarkaði um daginn,
fyrir samtals 40 kr. Þær voru náttúrulega bara keyptar út á útlitið.
EN þetta eru nú samt almennilegar bækur, biblía, sálmabók og
kennslubók í slátrun og verkun afurða, mjög fyndin sú.

Hafið það gott og takk fyrir komuna.



tirsdag 2. november 2010

Teksture

Who said white was boring? Not, me! I love white, if I only could surround me with one color it would be white. You just have to think in different teksture, to add depth and sensation.

I´m fully aware of the last 2 pictures are not white ;0)
We are so lucky to have more than one color in this world!
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...