Sider

Viser innlegg med etiketten køkken. Vis alle innlegg
Viser innlegg med etiketten køkken. Vis alle innlegg

torsdag 14. april 2011

Brukbare skatter

Det er ikke nok at en ting kun er smuk, jo vist er det nok, men endnu bedre er, hvis den også kan bruges. Denne mandelkvern fandt jeg hos en ældre herre som sælger diverse gamle ting og sager, jeg vidste nemlig ikke hvilken slags kvern det var i starten, men en mandelkvern kan jeg bruge, nu ville ingen klage næste jul over at mandlene er for grovt hakkede i min Ris a la mande!

Jeg beundrar altid kvaliteten på de gamle genstande som denne dørslag, som godt nok er lille smule rusten, men så gennemtænkt og solid, at det man kan ikke andet en at synes den er smuk. 
Jeg har et lille bitte køkken her,  og det er lige med indretnig  som have. Smalle pladser... så skal man tænke i højden, så istedet  for at ærge sig over de udenpå - liggende rør  - skal de bruges. 
Så op kom dørslaget at hænge og gemmer i øjeblikket rødløg.

Det var det for nu... 
Ha´ det godt alle sammen derude og nyd foråret

Hilsen Dagný







Jólunum bjargað!!!

Ég var lengi búin að dást að þessari fallegu kvörn hjá kallinum sem ég kíki til reglulega og selur ja - mikið af drasli og líka gamla fallega og dásamlega nytsama hluti.  Þegar ég svo komst að því að þetta var möndlukvörn var ég seld. Ég á fleiri kíló af möndlum  - ekki mikið að ýkja -   þær seljast í lausu hér á mun lægra verði en í pokunum, reyndar 3-4 x lægra verði. 

EN allavega, það þýddi að ég týmdi náttúrulega ekki að kaupa saxaðar möndlur fyrir jólin, heldur saxaði sjálf - í mortel -  og fékk bágt fyrir. Það var kvartað yfir eftirréttinum!!!
Þeir sem mig þekkja vita að ég er mikið fyrir matseld og er yfirleitt strangasti dómarinn sjálf - en þarna voru möndlurnar ekki nógu fínhakkaðar. Eins og sjá má á mynd 1. þá mun það ekki gerast aftur. 
Held samt að ég hefði endað með að kaupa hana þessa blessaða samt sem áður, hún er nefninlega svo ofboðslega falleg, liturinn, patineringin, formið - ja nefndu það. Hún fær a.m.k bros frá mér í hvert sinn er ég lít hana augum!

Sigtið sem ég fann fyrir nokkru síðan, var ég í fyrstu ekki alveg viss með. En það sem ég féll fyrir í sambandi við það voru gæðin. Svo sólít  og úthugsað ja og ekki skemmir - hvítt . En það verður að vera hægt að nota hlutina líka. 
Ekki er plássinu fyrir að fara í eldhúsinu hjá mér og það er eins með lítil eldhús og litla garða, maður verður að hugsa lóðrétt! Þannig að í stað þess að ergja sig yfir utanáliggjandi rörum fékk blessunin að hanga þar og er fyrirtaks ílát fyrir lauka og fleira og tekur ekki frá mér borðplássið á meðan. Allir hamingjusamir.

Hafið það gott þarna úti
með kærri kveðju út dásemdar veðri hér í Oslo
Og það verður geðveikt í næstu viku!!!! hlakka til ;=)

Dagný

onsdag 13. april 2011

Detaljebilleder af min kaffekværn

 Er den ikke bare smuk!

Nærmyndir af kaffikvörninni.... 
bara SVOOO  falleg!


tirsdag 12. april 2011

min lille tallerkenrække

Lidt af hver får min tallerkenrække gemme
gemmer lidt af hvert som en hver tallerkenrække skal.  Et nyt fund til få penger, en eldgammel kaffekværn -  med den fedeste patina, viser detalje billeder snart og gammel pisker - så skø så skøn

 en samling forskellige  fad og kagetallerkner - samlet i gennem årene. Et viskestykke med opskrift af pandekaker.... har godt nok ikke prøvet den men måske jeg skulle!

Det var det for nu... 
men jeg bliver veldig glad hvis I lægger en hilsning.
kram Dagný
En gammel pisker med smuk patinering, så kan jeg stadig få flødeskum hvis elektriciteten svikter ;0)
 Myndir af diskarekkanum mínum í litla eldhúsinu mínu. Hann geymir auðvitað sitt lítið af hverju eins og diskarekkar eiga að gera. 

Safn fata og kökudiska sitt úr hvorri áttinni, allt þó í ljósum litum. Eldgömul kaffikvörn... gat ekki staðist hana, gamall pískari- þannig að ég geti nú fengið þeyttan rjóma ef rafmagnið fer... 
fyrir utan það að það kemur eitt stórt bros á mína bara við að horfa á hann... hann er svo ótrúlega fallegur. 
Elska gömul verkfæri og áhöld - sérstaklega ef enn er hægt að nota þau, en þar setur hugmyndaflugið eitt okkur skorður. 


Hvítt viskastykki með bróderaðri pönnukökuuppskrift og svo gamlir stimplar sem segja vor - já vorið er nefninlega komið hér. 


Takk fyrir innlitið... 
velkomin aftur og ég verð voða glöð ef þið látið aðeins vita af ykkur


kveðja Dagný

torsdag 24. februar 2011

Inspiration køkken....

Faldt over disse billeder og lånt dem fra momoy.com. Meget flotte elementer, jeg ville i hvert fald ikke have noget imod at være den lykkelige ejer af alle disse koppergryder ( selv om man slet ikke behøver så mange) Ligeledes ville jeg ønske at jeg havde et stort gaskomfyr med mange blus og mange ovne. Men måske en dag. Rustik og flot men måske lidt for mørke køkkenelementer.... for min smag i hvert fald.

Rakst á þessar flottu myndir á momoy.com. Rosa flott eldhús, þó skáparnir séu kannski of dökkir fyrir minn smekk. Væri allavega ekkert á móti því að eiga alla þessa koparpotta, maður þarf reyndar ekki nema brot af þeim. Og gaseldavél. Já, það er ekkert að því að láta sig dreyma eða hvað?
Var að horfa á þátt sem DR1 er með, þar sem 5 ungum dönum er skellt í heim þeirra fátækustu á Indlandi og vinna við fataiðnaðinn. Held ég kaupi aldrei aftur lituð föt. Þau flökkuðu um og voru eitt sinn á einni lítilli saumastofu, þar sem þau fengu greitt per saumaðan kjól nokkrar krónur og ef það vantaði efni, fengu þau ekkert. Til að gera langa sögu stutta, náðu þau, 5 manns að þéna 100 rúbíur á einum degi, sem eru 240 íslenskar krónu og hefði nægt fyrir gistingu eina nótt, en engum mat. Þau höfðu ekkert borðað þann daginn, þannig að þau völdu mat og máttu gista í verskmiðjunni. Þar gistu líka margir af verkamönnunum, einn vann þar lágmark 9 tíma á dag, oft fram eftir kvöldi, hann náði að þéna um 150 rúbíur á dag, svo lagðist hann á gólfið og svaf þar. Hann bjó þarna. Aðspurður um drauma og þrár.... leit hissa á þau og svaraði neitandi. Hann hafði enga drauma! Sorglegt eða kannski bara heilbrigt þegar maður hefur ekki von um neitt annað og betra.

Eftir að hafa hoft á svona þátt virkar áhugamál eins og mitt, interiør, eitthvað svo dekurrófulegt. Víst erum við fordekruð hér á vesturlöndum. Ég hugga mig þó við það að lopinn sem ég prjóna úr er íslenskur og dótið sem ég kaupi er flest allt eldgamalt og vonandi ekki framleitt undir eins hræðilegum kringumstæðum, þar sem þeir sem meira mega sín, nýta sér neyð hinna lægra settu og hreinlega traðka á þeim, liggur mér við að segja.

Læt þó alveg yndifagrar myndir frá heimili einhvers sem greinilega hefur nóg á milli handanna flakka hér og vona að þið njótið.

Hann þarf ekki að vaska upp þessi nema 2x í mánuði, bara sækja nýjan pott;0)
Ætli hún sé ekki svona ca. einn og hálfur meter þessi eldavél!
Eins og mér finnst þetta flott, elska arinninn.
Virkar loftið samt svolítið þrúgandi.

Kannski bara hin myndin en þetta er amk rustik, ljóst og flott.
Truflaður arinn og borðið, já takk!!!
Þessi er nú ekki úr eldhúsinu heldur baðinu, ef ég ætti að giska.
Finnst bara litasamsetningin á þessarri mynd SVO flott.
Get hoft á hana endalaust.
Flottasta myndin.

Vona að þið hafið það gott og njótið þess vel HVAÐ þið hafið það nú gott!!

Dagný

tirsdag 7. september 2010

Á ísskápnum

En smuk kurv for alt det grimme!
Smukke beholdere kan man aldrig ha´for mange af!
Í stað alls draslsins sem búið er að prýða ísskápinn síðan við fluttum inn er núna komin yndislega falleg gömul karfa, gamalt búðingaform, lítil dós og svo í langa stauknum...
Ja, ég á ekki hakkavél þannig að núna get ég samt fengið loftkökur og vanillukransa á jólunum. Þetta er alveg brilliant apparat það fylgdu 3 mismunandi mynstur með í botninum og svo er bara að troða deiginu inn og ýta á eftir! Held ég reyndar þrífi staukinn áður, en ég hlakka svo sannarlega til að fara að baka fyrir jólin! Er ekki október í næsta mánuði? Þá er alveg tímabært að byrja. Ódýrasta hakkavél sem ég veit um.

hafið það gott,
kveðja Dagný
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...