Sider

Viser innlegg med etiketten Handavinna. Vis alle innlegg
Viser innlegg med etiketten Handavinna. Vis alle innlegg

fredag 22. april 2011

Föstudagurinn langi

 Í dag er líka sól og blíða hér á þessum drottins degi. Hvað er meira viðeigandi fyrir þennan dag en einmitt krossinn. Sá svona kross á netinu um daginn og hugsaði með mér, að svona gæti ég bara búið til. Átti einmitt víra  í hann, þannig að þá var bara að klippa, beygja og vefja. Nokkrar mínútur og þá var hann kominn þessi elska. Er himinsæl með hann, eitthvað svo látlaus og hrár.
Er der noget mere passende end en kors på en dag som i dag. Denne er hjemmelavet, så en der lignede på et blog forleden, og tænkte at sådan en kunne man sagtens selv lave. Rigtig nok, på nogle få minuter. 
Her skinner solen og jeg skal ud at nyde den. 

Hilsen 
Dagný

mandag 12. april 2010

Krepputíska

Hið góða við kreppuna er að sú iðja að prjóna fellur ekki í algleymi. Ungu konurnar, sem ekkert kunnu til verka, eru nú á kafi í prjónaskap og íslenski lopinn hefur fengið uppreisn æru. Ég fylgi að sjálfsögðu tískunni, verð þó að viðurkenna að ég prjónaði líka fyrir kreppu, en er öllu duglegri þessa dagana. Stel uppskriftum og laga þær aðeins til og framleiði svo á vini og vandamenn og sjálfa mig auðvitað líka.

Það eru margar netsíður með prjónatengdu efni en best þykir mér garnstudio.com. Fríar uppskriftir á mörgum tungumálum - flottar uppskriftir og geðveikt garn. Sem því miður er okrað á hér heima, eins og á öllu öðru. Ekki nóg með að krónan sé verðlaus , heldur þurfta þær hjá Föndru að bæta 33% ofaná. Erla á Snorrabrautinni er eitthvað aðeins ódýrari sýndist mér.

En bláfátækir Íslendingar kvarta náttúrulega aldrei og taka bara upp budduna og borga með bros á vör. Það skal sko enginn halda að ég sé blönk (blankur). Svo kvarta þeir og kveina á kaffistofunum. Það nægir okkur Íslendingum. Enda nægjusemin okkur í blóð borin ;0)
Gangi ykkur vel með prjónaskapinn.


Her i Island strikker vi os ud af finanskrisen. Alle frustrationer kan strikkes væk.
Den islandske uld Álafoss - lopi er på måde igen, så industrien blomstrer.
Den er jo både billig, varm og smuk, selv om nogle ømskinnede ikke kan tåle den.
Álafoss hjemmeside kan man få gratis opskrifter af islandske uldtrøjer.
Selv er jeg forelsket i garnstudio.com, synes bedst om den. Men strikker selvfølgelig også mange islandske trøjer som denne her for eksempel, som jeg strikkede til
min bror.

tirsdag 8. desember 2009

Frances reves - hjemmelavet pude

Ville så gerne ha en pude af en gammel sæk, men de findes ikke her i landet, så må man jo improvesere og lave en "copy" selv.
Franske drømmer som min blog hedder står der på fransk, bla.

Mig langaði þessi ósköp í púða úr gömlum sekk en þar sem þá er ekki að finna hér á þessu skeri varð ég bara að vera smá kreativ og búa mér til einn slíkann sjálf.
Franskir draumar á frönsku stendur meðal annars.
Er bara nokkuð lunkin með hann.

torsdag 4. juni 2009

Persónuleg sængurgjöf

Þennan litla sæta bangsa prjónaði snúllan mín
 fyrir litlu frænku, 
 sem fæddist fyrir tæpum 3 vikum. 
Mér finnst hann ferlega sætur.
Stollt mamma!

Denne bamse strikkede min datter til en lille niese,
som blev født for nogen uger siden. 
Jeg synes den er sød.
Meget stolt mor!
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...