Sider

Viser innlegg med etiketten inspiration. Vis alle innlegg
Viser innlegg med etiketten inspiration. Vis alle innlegg

onsdag 30. mars 2011

Jeanne d´arc living - glæder mig til den 8. april !

Verð að segja að næsta tímarit lofar góðu.
Það kemur út 8. apríl næstkomandi.
Besta interiør tímarit á markaðnum, ekki spurning.
Keypti það dýrum dómi og fékk sent til Íslands áður en ég flutti út.
Nú labba ég bara niður í næstu búð og kaupi það.
Það var hægt að vera áskrifandi, en veit ekki hvernig það er lengur þar sem þær stöllur eru núna með nýja heimasíðu. Sé það ekki í fljótu bragði, en þá er bara að hafa samband við þær og leggja inn fyrirspurn sé áhuginn fyrir hendi.
Tímaritið kemur út á amk 5 mismunandi tungumálum, líka ensku fyrir þá sem ekki eru of sleipir í norðurlandamálunum.


myndirnar segja allt sem segja þarf


Billederne fra 3.udgave af Jeanne d´arc magasinet er lovende. Jeg kan i hvert fald godt lide dem og glæder mig til det udkommer den 8. april nestkommende.

torsdag 24. februar 2011

Inspiration køkken....

Faldt over disse billeder og lånt dem fra momoy.com. Meget flotte elementer, jeg ville i hvert fald ikke have noget imod at være den lykkelige ejer af alle disse koppergryder ( selv om man slet ikke behøver så mange) Ligeledes ville jeg ønske at jeg havde et stort gaskomfyr med mange blus og mange ovne. Men måske en dag. Rustik og flot men måske lidt for mørke køkkenelementer.... for min smag i hvert fald.

Rakst á þessar flottu myndir á momoy.com. Rosa flott eldhús, þó skáparnir séu kannski of dökkir fyrir minn smekk. Væri allavega ekkert á móti því að eiga alla þessa koparpotta, maður þarf reyndar ekki nema brot af þeim. Og gaseldavél. Já, það er ekkert að því að láta sig dreyma eða hvað?
Var að horfa á þátt sem DR1 er með, þar sem 5 ungum dönum er skellt í heim þeirra fátækustu á Indlandi og vinna við fataiðnaðinn. Held ég kaupi aldrei aftur lituð föt. Þau flökkuðu um og voru eitt sinn á einni lítilli saumastofu, þar sem þau fengu greitt per saumaðan kjól nokkrar krónur og ef það vantaði efni, fengu þau ekkert. Til að gera langa sögu stutta, náðu þau, 5 manns að þéna 100 rúbíur á einum degi, sem eru 240 íslenskar krónu og hefði nægt fyrir gistingu eina nótt, en engum mat. Þau höfðu ekkert borðað þann daginn, þannig að þau völdu mat og máttu gista í verskmiðjunni. Þar gistu líka margir af verkamönnunum, einn vann þar lágmark 9 tíma á dag, oft fram eftir kvöldi, hann náði að þéna um 150 rúbíur á dag, svo lagðist hann á gólfið og svaf þar. Hann bjó þarna. Aðspurður um drauma og þrár.... leit hissa á þau og svaraði neitandi. Hann hafði enga drauma! Sorglegt eða kannski bara heilbrigt þegar maður hefur ekki von um neitt annað og betra.

Eftir að hafa hoft á svona þátt virkar áhugamál eins og mitt, interiør, eitthvað svo dekurrófulegt. Víst erum við fordekruð hér á vesturlöndum. Ég hugga mig þó við það að lopinn sem ég prjóna úr er íslenskur og dótið sem ég kaupi er flest allt eldgamalt og vonandi ekki framleitt undir eins hræðilegum kringumstæðum, þar sem þeir sem meira mega sín, nýta sér neyð hinna lægra settu og hreinlega traðka á þeim, liggur mér við að segja.

Læt þó alveg yndifagrar myndir frá heimili einhvers sem greinilega hefur nóg á milli handanna flakka hér og vona að þið njótið.

Hann þarf ekki að vaska upp þessi nema 2x í mánuði, bara sækja nýjan pott;0)
Ætli hún sé ekki svona ca. einn og hálfur meter þessi eldavél!
Eins og mér finnst þetta flott, elska arinninn.
Virkar loftið samt svolítið þrúgandi.

Kannski bara hin myndin en þetta er amk rustik, ljóst og flott.
Truflaður arinn og borðið, já takk!!!
Þessi er nú ekki úr eldhúsinu heldur baðinu, ef ég ætti að giska.
Finnst bara litasamsetningin á þessarri mynd SVO flott.
Get hoft á hana endalaust.
Flottasta myndin.

Vona að þið hafið það gott og njótið þess vel HVAÐ þið hafið það nú gott!!

Dagný

søndag 31. oktober 2010

It doesn´t get any better than this!




Allow your self to get inspired!
pictures from Factory 20
A wonderful place for inspiration- if you don´t look at the price ;=)

onsdag 27. oktober 2010

Flott sófaborð eða hvað?

Ekki flott heldur æði. Ætla að reyna að smíða mér svona takist mér að verða mér úti um hráefni. Það ætti að vera ódýrara en að kaupa þetta sem er á um 100.000 ísl. Síðan heitir
http://www.factory20.com/. Hrein gullnáma fyrir þá sem eru fyrir hráan slitinn industry stíl.

lørdag 8. mai 2010

Bækur sem veita innblástur

Ikke alle sammen lige gode, men de fleste er inspirernde.
Recycled home og Flea market style er lidt for farverige
for min smag og jeg må indrømme at jeg blev lidt skuffet.
Men junk style har fantastisk flotte billeder.

Ekki allar jafn góðar, sumar of litríkar
eins og Recycled home og Flea market style
en aðrar þeim mun betri.
Den bedste efter min mening er klart denne her

Uppáhaldsbókin- þessi er æði, smá sýnishorn úr henni hér að neðan.

Et lille kig ind i bogen.


En eitt er öruggt það má vel gleyma sér við lestur/ skoðun á þessum bókum með góðan kaffibolla í hönd.
Aftur og aftur og aftur og aftur....


onsdag 28. april 2010

En gammel hospitalseng


Så smuk den er,
denne gamle hospitalseng i det gamle Sygehus i min fødeby.
Huset blev renoveret for nogle år siden og i dag har vi byens bibliotek der.
Nu kun til udstilling, ville gerne den var min.

Ég tók þessar myndir þegar ég heimsótti fæðingarbæ minn í fyrrasumar.
Gamla Sjúkrahúsið sem nú geymir bókasafnið hefur verið sett svo fallega í stand.
Þar rakst ég á þetta gamla sjúkrarúm og langaði helst af öllu að taka það með mér undir arminn og fara með það heim. Kannski maður ætti að hafa samband og sjá hvort þau eigi fleiri og séu til í að selja mér eins og eitt slíkt? Hver veit?

torsdag 8. april 2010

Et drømme hjem í Frankrig

Draumur í dós. Ég er flutt burtu úr kreppu,
stjórnleysi og volæði á Íslandi,
í nostalgíu og sjarma á Bretange France.
Gamall skóli 400 m2 á 4000m2 lóð.
Held ég yrði ekki lengi að fylla hann af fögrum plöntum.
Og húsið, æði heldur betur sjarmi!

Bed and breakfast og bric and brac

Jeg flytter!
Nej, desværre. Men en drøm er denne gamle skole på 400 m2 og 4000m2 grund lige til at plante noget på. Lokalisering Bretagne France, en time fra Brest. Ja, tak meget gerne.

I´m in love

tirsdag 27. oktober 2009

Nostalgi


Billede fra Kronen
Er der noget mere nostalgisk end gamelt legetøj?
Denne yndige hest fås i Kronen og koster 5100 dkr,

Annaðhvort elskar maður gömul leikföng eða finnst þau hálf creapy. En nostalgisk eru þau allavega. Þessi yndislegi hestur fæst í Kronen og kostar aðeins 5100 dkr.

onsdag 2. september 2009

Flotte lamper fra Par Courrier





Billeder fra Par Courrier

Fantastisk flotte lamper fra Par Courrier, elsker lukten, men den er ret dyr, især for islandske kroner.

Flottir lampar úr sænsku netbúðinni Par Courrier, þessir lampar kosta frá  ca 2000-3500 skr.
Ekki alveg fyrir okkar íslensku krónu, sem í augnablikinu fær aðeins líknandi meðferð!

njótið dagsins

søndag 2. august 2009

Franskur sjarmi!



Ef það er eitthvað sem frúna langar í er það ekta gamalt franskt járnrúm. 
Ég er bara svo heppin að hafa hvorki pláss fyrir eitt slíkt né vera í aðstöðu til að kaupa það :o))
Maður getur nú samt dáðst að þeim og skoðað. Þessi tvö neðstu fást í frábærri búð í Danmörku sem heitir honning og flora - eða hunang og blóm - eins og það myndi útleggjast á okkar ástkæra ylhýra. Hitt fann ég á uppboðssíðu í Frakklandi og átti að kosta um 80 evrur, það finnst mér ekki mikið. Þannig að hver veit. Einhverntíma verð ég hamingjusamur eigandi eins slíks rúms!

Fantaskisk flotte jernsenger blandt andet fra Honning og flora .
Hvem ved måske en gang bliver jeg en lykkelig ejer af sådan en!

torsdag 30. juli 2009

Dreymir enn...

Þessa dagana, læt ég mig dreyma. Get ekki tekið neinar myndir hér heima þar sem verið er að vinna í ýmsu og allt sést jú á mynd. 

Svona  Louis Philippe kaminspegill kostar ca 3500 danskar. 
Já, maður borgar ekstra fyrir að geta ekki speglað sig almennilega og að það sjáist vel á rammanum.
 Ekki það að þeir finnast náttúrulega margfalt dýrari.

En það er eitthvað sem er svo sjarmerandi við þá. 
Og það er ekki bara að mér finnist það, því þeir hafa 5 faldast í verði á undanförnum ca 7 árum!
Sem sagt voru prýðis fjárfesting hér einu sinni. 
Eignast kannski einhverntíma einn svona. 

Ég á 2 nýja, er búin að hugsa mikið um að patinera þá. 
Held ég hugsi bara um það áfram :-))

Drømmer disse dage om gamle franske unike sager, som de sidste indlæg viser.
Synes denne spejl er fantastisk flot. 
Har tænkt meget over, om jeg skulle patinere mine, har nyproducerede.
Tror jeg tænker videre :-))

onsdag 29. juli 2009

Kirkjukertastjakar

Á óskalistanum er að eignast einhverntíma
 flottann gamlan franskan kirkjukertastjaka, 
eins og einhvern þessarra. 
Þeir kosta ca fra 3000 og upp í 9000 dkr, 
eftir stærð, efni og ástandi. 

Algjör draumur !

Myndir frá Lund livsstil Sparregård, frábær netbúð.

På ønskelisten. Disse er fantastisk flotte!

tirsdag 28. juli 2009

Hylder



Skal til at bestemme mig hvilken slags jeg gerne vil på min væg.
Billeder fra  Livsstil på Sparregård
Som er den skønneste butik med franske vidunderlige ting. 
Tænk sig at jeg kørte forbi i over et år uden viden om butikken. 
Fandt ud af den en anelse for sent.

Nú er að ákveða sig hverslags hillu ég ætla að smíða á stofuvegginn. 
Myndirnar eru fengnar að láni frá yndislegri búð 
Sem ég reyndar keyrði framhjá í heilt ár
 án þess að vita um hana. 
Komst að tilveru hennar eftir að ég flutti heim.
 ARRRG!



søndag 31. mai 2009

Et så skønt laaaaangbord..

på hele 3 meter. Så smukt og skønt, og der kan sidde rigtig mange!
Men jeg kan ikke lade være med at tænke, 
hvad  i al verden gjorde folk af deres ben i gamle dage?
Det må have været irreterende altid at have noget i vejen for deres fødder.
Bild fra atelier september, klik og se flere .

Þetta langborð er alveg yndislega fallegt, finnst mér. 
Ekki er verra að hér geta setið margir, margir!
Því borðið er heilir 3 metrar.
Get þó ekki annað en velt fyrir mér, 
hvað í ósköpunum gerði fólk af fótunum á sér í gamla daga?
Hlýtur að hafa verið pirrandi að hafa alltaf einhverja spítu 
að  þvælast fyrir.



Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...