og selvfølgelig bør den brukes daglig
Ég elska gamalt silfur. Ég safna því. Ætlaði fyrst fyrir mörgum árum bara að hafa ekta gegnheilt, en er horfin frá því þar sem ég sá fram á að með mín fjárráð yrði ég að bíða ansi lengi. Á þó nokkrar skeiðar og gafla í ekta, en restin er plett. Er loksins búin að finna staði sem selja það á dönsku verði.
Það er svo margt alveg hrikalega dýrt hér í þessu landi, en vilja, elju og góðri sjón má finna ýmislegt bæði fallegt, nytsamlegt og á viðráðanlegu verði.
OG AUÐVITAÐ NOTA ÉG SILFRIÐ HVERSDAGS LÍKA
Ingen kommentarer:
Legg inn en kommentar