Sider

søndag 10. april 2011

Sunnudagur til sælu...

Madonna úr steini fallega patineruð frá Miljøgården.

.... ekki annað hægt hér í 21 stigs hita og sól. Sólin skín ekki á mælinn!!!!
Ætla út á svalir og fá mér einn góðan latte.
Vona að allir eigi góðan sunnudag


Madonna, gluggi, kross , krans og skór.... Það er meira hvað kvenfólk er alltaf veikt fyrir skóm, hvort heldur sem þeir eru úr tré eða járni!!

lørdag 9. april 2011

Vorið er komið!

Er så fornøjd med min fine lampe fra House doctor, skulle godt nok næsten tænke om den hele vinteren før jeg købte den. Men jeg er superglad for den!
Ha´et godt lørdag aften.


Hér hefur verið hreint dásamlegt veður í dag og allir notið þess að vera úti við. Allir garðar, torg og kaffihús fyllast af fólki sem hefur það náðugt og nýtur góða veðursins. Annað og betra en allt í háalofti út af einhverju ICE SAVE. Hvað er nú það spyr ég ? Er flutt, kemur þetta ekki við og ætla ekki að borga þetta.
Nýt bara lífsins hér og slaka á í eldgömlu fallegu rúmi með Jesú krist yfir höfði mér, hjartað nærri og góða birtu frá mínum fallega lampa, sem ég loksins festi kaup á um daginn eftir að hafa hugsað málin í allan vetur.
Ja, sumir þurfa að sofa aðeins á hlutunum, aðrir leggjast hreinlega í hýði ;0)
EN nú er vorið komið og ég vöknuð aftur.
Vona að þið njótið nú kvöldsins í friði og spekt.

kveðja frá Oslo

fredag 8. april 2011

Púðar

Hver elskar ekki púða, af öllum stærðum og gerðum, mis mjúka, með ólíkri áferð? Ég get amk skrifað undir það, að ég elska þá og á yfirdrifið nóg af þeim, held ég ;0)
Það er ótrúlegt hve miklu hægt er að breyta með því að skipta einungis um púðaver. Púðaver geta jafnvel verið ákveðið tjáningarform og eins og málari málar mynd, fá sumir útrás með því að hanna og suma púða.
Þeir segja líka meira um okkur en við kannski ályktum í fyrstu. Td. hve "behagesyg" við erum - eins og daninn myndi orða það - ætli það myndi ekki útleggjast sem þægindasjúk á okkar ástkæra ylhýra. Hvaða litir okkur líkar, hve "rómantísk" eða "röff" við erum og svo framvegis.
Get til dæmis dregið þá ályktun að ég er manneskja sem er MJÖG þægindasjúk - þar sem öll rúm og sófar eru full af púðum - nema ég sé manneskja sem veit ekki hvenær hún á að stoppa - það er þá annað sem púðarnir mínir segja um mig. Ekki er ég nú mjög litaglöð manneskja og greinilega þoli ég ekki of rómantískt umhverfi, þó ég geti ekki alveg ákveðið mig hve mjúk eða röff ég er.....

Þessi grófi úr sekkjaléreftinu er nýjasta saumaverkefnið, fljótlegt, einfalt og gott,
Er himinsæl með útkomuna, á þó enn eftir að skrifa texta á hann.
Kannski það verði í dag, hver veit. Ég ætla amk ekki að missa svefn yfir því að
vera ekki búin með hann.


Púðar svo langt sem augað eygir....
Hver hefur ekki sem barn látið sig dreyma um að liggja eins og engill á skýji í endalausri mýkt?
Kannski þetta sé tilraun til að nálgast þá tilfinningu.....
Hvað segja púðarnir þínir um þig?

kveðja úr sólinni í Oslo
Dagný

Hvem elsker ikke puder? Vi omgiver os med dem i massevis fordi vi er så behagesyge eller hvad?
De siger også mere om os end man i første omgang ville tro. For exempel, hvor behagesyge vi er, hvilke farver, texturer og mønstre vi kan lide. Også hvor romantiske eller røf vi er.
Hvad fortæller dine puder om dig?


Hilsen fra forårssolen i Oslo,
Dagný

torsdag 7. april 2011

Krossgötur

Elsker kors i alle form. Den er en god påminder om livets gang, at man ind i mellem skal tage livet i egen hånd og vælge en vej. Om man så har truffet det rigtige valg, kan kun tiden afgøre. Men jeg mener at det er bedre at tage et bevidst valg og så tage konsekvensen af det, end bare at flyde gennem livet uden at have noget som helst at sige om, hvorhen strømmen bærer én.

Í lífinu stöndum við oft á krossgötum. Oftar en ekki erum við ekkert sérlega sæl með það, nema ég sé undartekningin sem sannar regluna, en þó verð ég að segja að það er hollt að standa frammi fyrir vali annað slagið. Það þvingar okkur til þess að taka líf okkar til endurskoðunar og taka meðvitaða ákvörðun. Hvort rétt ákvörðun var/er svo tekin getur einungis tíminn leitt í ljós, en að tvennu illu held ég að það sé betra að velja rangan veg en að vera með stöðuga ákvörðunarfælni og velja bara ekki neitt. Láta lífið bara líða, fljóta stjórnlaust áfram og hafa ekkert um það að segja hvert straumurinn ber mann.
Kannski trúartáknið okkar krossinn geti verið leiðbeinandi tákn fyrir trúleysingja líka ;0)


En gammel fransk kors, gammelt vindue og et par gamle bageform
kan godt udgøre det smukkeste stilleben.

Gamall franskur kross, gamall gluggi og tvö gömul bökunarform.....
í stofuglugganum mínum.

onsdag 6. april 2011

Mit nye hus !


Sitter og drømmer/ planlægger fremtiden.
Kunne godt tænke mig et af disse huse - eller måske alle
Er lidt af en samler, men mon ikke man kan nøjes med ét.
Er blevet en stor tilhænger af laftede huse...
de har så kæmpemange fordele og smukke er de også.
Er der noget galt ved at bo i en hytte hele året,
mange ønsker sig at have fri hele året ;0)

billeder lånt fra
laftekompaniets hjemmeside...
kigg der ind og nyd de flotte huse.


Sit og læt mig dreyma/ plana framtíðina.
Gæti alveg hugsað mér eitt af þessum húsum...
eða kannski öll, erfitt að vera safnari, en ætli eitt nægji ekki.
Elska þessa glugga!
Svo ótrúlega fallegir og nóg af þeim.
Er komin á þá niðurstöðu að sennilega er best að byggja.
Ekki mikið af fallegum gömlum húsum á viðráðanlegu verði.
Svo getur maður þá líka ráðið "öllu" ;0)
EN bjálkahús er efst á óskalistanum núna....
er að máta hugmyndina.
Þau eru með svo gott inniklima eins og það heitir á góðri "íslensku" ;=)
Ofnæmissjúklingar hafa nætt að nota asmalyfin sín eftir að hafa búið í þannig húsi.
Þau eru reist á no time!
Það er lítið viðhald, endingargóð, hér í noregi eru 800 ára bjálkahús !!! það segir eitthvað,
og síðast en ekki síst...
þau eru svo vel einangruð/einangrandi að það kostar ekkert að kynda,
sem er mjög stór póstur hér í útlöndum.
myndir fengnar að láni frá laftekompaniet...
smellið á linkinn og njótið

Auðvitað eru þessi gömlu hér algjör gullmoli.
Held mig langi mest í hús sem er í laginu eins og þetta að neðan.
Einfalt, ferhyrnt, tvílyft og með fullt af gluggum!

Það er gott að láta sig dreyma....
og það kostar ekki neitt !!!!

neðstu 2 myndirnar man ég ekkert hvar ég fékk "lánaðar"
husker ikke hvor jeg" lånte" de nederste 2 billeder


Har sat ind linke til hjemmesider om gamle og nye træhuse.
Setti inn linka á heimasíður um ný og gömul timburhús

tirsdag 5. april 2011

Besta vinkona mín!

Fyrir jólin í 10 stiga frosti í jólagjafahugleiðingum fórum við skvísan mín inn í verslun eina sem selur hin ýmsustu tæki, tól og búsáhöld til að fá nýtt hylki í sódastreemið. Það tók smá tíma þannig að frúin varð óþolinmóð og fór að kíkja í kringum sig.... Og hvað sá hún?
Kitchen Aid vél með hakkavél og safapressu á hálfvirði! Samtímis togaði þyngdarkraftur jarðar mun minna í mig og hugmynd fæddist. Þetta yrði jólagjöfin okkar í ár. Ekkert vesen, afgreitt mál.
Og þannig varð það. Þessi elska kom með mér heim og hefur verið mín besta vinkona síðan. Jólabaksturinn varð hreint út sagt unaðsleg upplifun, ekkert að ýkja ;0) Eðlilega þegar svona tæki hefur verið á óskalistanum í 15 ár, hvorki meira né minna. Reyndar kostaði hún mig næstum alla fingurna. Það var svo hræðilega kalt og ég var í 66 flísvettlingunum mínum og það er ómögulegt að halda á nokkrum sköpuðum hlut í þeim. Hvað þá stórum þungum sleipum kassa. Þannig að nú reyndi á víkinginn í mér, vettlingalaus í 10 stiga frosti (ég er ALLTAF með vettlinga) og sársaukinn. Best að reyna að gleyma honum. Ég komst heim með gripinn og nú átti Ég svona dásamlegt apparat. Ekkert VIÐ neitt. Þitt er mitt og mitt er mitt, er það ekki alltaf þannig þegar að heimilistækjunum kemur? Maðurinn hefur amk aldrei notað hana, en hinsvega notið góðs af kellu.

Sé ég rétt, veit ég að ein eða tvær þarna úti hugsa! Er þetta rautt í eldhúsinu hjá Dagnýju?
Já, rautt dásamlegt flöskustatív. Hef horft á eitt slíkt í allan vetur, verðið var bara ekki alveg fyrir budduna mína, eða samvisku ef út í það er farið. EN í Søstrene Grene hér um daginn fann ég eitt fyrir 1/5 af verðinu. Mátulega stórt, fallegt í laginu, fallega sjúskað og það er sink undir, þannig að þegar ... ekki EF takið eftir.... ég fæ leið á litnum vær málningin að fjúka, en þangað til get ég dáðst að þessu fallega nytsama statívi við hlið vinkonu minnar.
Fer reyndar enn upp í skáp að sækja kaffibolla, en þetta er að koma ;0)

Min beste veninde hedder Kitchen Aid. Jeg havde ønsket mig sådan en i 15 år, før den blev min lige inden jul. Den kostede mig næsten alle mine fingre, for den skulle bæres hjem i -10 grader, uden vanter, man kan jo ikke bære noget som helst i flisvanter! Men det var det værd. Jeg elsker den næsten over alt på jorden.
Flaskestativet i rødt godt og vel, fandt jeg til få penger i Søstrene Grene, ikke lige min farve, men den kan fjernes når, ikke om, jeg bliver træt af den. Men jeg kan rigtig godt lide stativet som det er nu. Patineringen er vellykket og indenunder er der zink belagt. Jeg har chekket!
Det går dog lidt langsomt med at vænne sig af at hente kaffekoppene i skabet, men mon det ikke kommer med tiden ;0)


mandag 4. april 2011

Det mest perfekte i verden er blomster

og især sem som stadig står efter næsten 2 uger. Selvfølgelig forventede jeg det af Hortensien, den skal kun have godt med lys og masser af vand, men den anden som jeg ikke husker navnet på er en overdådig overraskelse.

Það er fátt sem gleður eins og blóm. Hvít blóm eru alltaf falleg og það eru fá fallegri en Hortensían. Dásamleg og falleg með perlu í miðju blómi. Hún er voða hamingjusöm hjá mér. Hún þarf bara góða birtu og nóg að drekka.
Hitt blómið er afskorið og hefur staðið í nærri 2 vikur, kaupi sko heldur betur þannig aftur. Verst að ég man ekki nafnið. Held fresíur eða eitthvað álíka, þær eru svona blanda af íris og lilju. Elska litasamsetninguna á blóminu. Það er ekkert eins fullkomið í heiminum og blóm.
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...