Sider

Viser innlegg med etiketten Stofa. Vis alle innlegg
Viser innlegg med etiketten Stofa. Vis alle innlegg

fredag 15. april 2011

Loppefund

Denne bærplukker sat på en bænk og ventede på mig sidste lørdag da jeg kom lidt sen på den på loppemarked her i den nærmeste skole. Jeg som troede alt var væk, men ikke alt, selvom alle møbler som var noget værd for øjet var væk. Men denne skat, samt nogle brugbare og smukke bøger blev mine. Så jeg kan ikke klage - men siger i stedet, skål! da mange skal nyde et glas rødt eller hvidt i aften og slappe af efter ugen. 
Go´helg
Dagný



 Þessi berjatína sat á bekk og beið mín þolinmóð þegar ég kom heldur sein á flóamarkað í skóla einum hér rétt hjá. Ég hélt að auðvitað væri allt eigulegt farið, það var það svosem, amk sá ég fólk labba í burtu með mjög eigulega hluti, en tómhent fór ég ekki. 

Áður en ég yfirgaf svæðið ákvað ég að fara og kíkja á bækur, ætlaði að sjá hvort einhverjar gamlar nótnabækur væru á svæðinu til að föndra með - en áður en ég vissi af var ég sem dregin að elstu bókunum. Svo dásamlegar - yndisfagrar og slitnar og ja, þessar gæti ég notað. Mig vantar einmitt norsk- enska orðabók, og þessi sem er um 100 ára gömul er mun fallegri en þær nýju, fyrir utan það að þú færð ekki nýja orðabók fyrir 30kr !!

Og þar sem ég er nú í heilsugeiranum fannst mér tilvalið að taka með mér þessi 3 bindi af vår helse sem gefin er út af læknasamtökunum 1934, gaman að lesa hvaða hugmyndir og heilsufarslegar áhyggjur voru í þá daga.


                                                                     
Að lokum vil ég bara segja - SKÁL - föstudagur og margir fá sér eflaust gott glas að rauðu eða hvítu og slaka vel á  eftir vikuna!


Góða helgi
kveðja Dagný


søndag 10. april 2011

Sunnudagur til sælu...

Madonna úr steini fallega patineruð frá Miljøgården.

.... ekki annað hægt hér í 21 stigs hita og sól. Sólin skín ekki á mælinn!!!!
Ætla út á svalir og fá mér einn góðan latte.
Vona að allir eigi góðan sunnudag


Madonna, gluggi, kross , krans og skór.... Það er meira hvað kvenfólk er alltaf veikt fyrir skóm, hvort heldur sem þeir eru úr tré eða járni!!

lørdag 9. april 2011

Vorið er komið!

Er så fornøjd med min fine lampe fra House doctor, skulle godt nok næsten tænke om den hele vinteren før jeg købte den. Men jeg er superglad for den!
Ha´et godt lørdag aften.


Hér hefur verið hreint dásamlegt veður í dag og allir notið þess að vera úti við. Allir garðar, torg og kaffihús fyllast af fólki sem hefur það náðugt og nýtur góða veðursins. Annað og betra en allt í háalofti út af einhverju ICE SAVE. Hvað er nú það spyr ég ? Er flutt, kemur þetta ekki við og ætla ekki að borga þetta.
Nýt bara lífsins hér og slaka á í eldgömlu fallegu rúmi með Jesú krist yfir höfði mér, hjartað nærri og góða birtu frá mínum fallega lampa, sem ég loksins festi kaup á um daginn eftir að hafa hugsað málin í allan vetur.
Ja, sumir þurfa að sofa aðeins á hlutunum, aðrir leggjast hreinlega í hýði ;0)
EN nú er vorið komið og ég vöknuð aftur.
Vona að þið njótið nú kvöldsins í friði og spekt.

kveðja frá Oslo

fredag 8. april 2011

Púðar

Hver elskar ekki púða, af öllum stærðum og gerðum, mis mjúka, með ólíkri áferð? Ég get amk skrifað undir það, að ég elska þá og á yfirdrifið nóg af þeim, held ég ;0)
Það er ótrúlegt hve miklu hægt er að breyta með því að skipta einungis um púðaver. Púðaver geta jafnvel verið ákveðið tjáningarform og eins og málari málar mynd, fá sumir útrás með því að hanna og suma púða.
Þeir segja líka meira um okkur en við kannski ályktum í fyrstu. Td. hve "behagesyg" við erum - eins og daninn myndi orða það - ætli það myndi ekki útleggjast sem þægindasjúk á okkar ástkæra ylhýra. Hvaða litir okkur líkar, hve "rómantísk" eða "röff" við erum og svo framvegis.
Get til dæmis dregið þá ályktun að ég er manneskja sem er MJÖG þægindasjúk - þar sem öll rúm og sófar eru full af púðum - nema ég sé manneskja sem veit ekki hvenær hún á að stoppa - það er þá annað sem púðarnir mínir segja um mig. Ekki er ég nú mjög litaglöð manneskja og greinilega þoli ég ekki of rómantískt umhverfi, þó ég geti ekki alveg ákveðið mig hve mjúk eða röff ég er.....

Þessi grófi úr sekkjaléreftinu er nýjasta saumaverkefnið, fljótlegt, einfalt og gott,
Er himinsæl með útkomuna, á þó enn eftir að skrifa texta á hann.
Kannski það verði í dag, hver veit. Ég ætla amk ekki að missa svefn yfir því að
vera ekki búin með hann.


Púðar svo langt sem augað eygir....
Hver hefur ekki sem barn látið sig dreyma um að liggja eins og engill á skýji í endalausri mýkt?
Kannski þetta sé tilraun til að nálgast þá tilfinningu.....
Hvað segja púðarnir þínir um þig?

kveðja úr sólinni í Oslo
Dagný

Hvem elsker ikke puder? Vi omgiver os med dem i massevis fordi vi er så behagesyge eller hvad?
De siger også mere om os end man i første omgang ville tro. For exempel, hvor behagesyge vi er, hvilke farver, texturer og mønstre vi kan lide. Også hvor romantiske eller røf vi er.
Hvad fortæller dine puder om dig?


Hilsen fra forårssolen i Oslo,
Dagný

torsdag 7. april 2011

Krossgötur

Elsker kors i alle form. Den er en god påminder om livets gang, at man ind i mellem skal tage livet i egen hånd og vælge en vej. Om man så har truffet det rigtige valg, kan kun tiden afgøre. Men jeg mener at det er bedre at tage et bevidst valg og så tage konsekvensen af det, end bare at flyde gennem livet uden at have noget som helst at sige om, hvorhen strømmen bærer én.

Í lífinu stöndum við oft á krossgötum. Oftar en ekki erum við ekkert sérlega sæl með það, nema ég sé undartekningin sem sannar regluna, en þó verð ég að segja að það er hollt að standa frammi fyrir vali annað slagið. Það þvingar okkur til þess að taka líf okkar til endurskoðunar og taka meðvitaða ákvörðun. Hvort rétt ákvörðun var/er svo tekin getur einungis tíminn leitt í ljós, en að tvennu illu held ég að það sé betra að velja rangan veg en að vera með stöðuga ákvörðunarfælni og velja bara ekki neitt. Láta lífið bara líða, fljóta stjórnlaust áfram og hafa ekkert um það að segja hvert straumurinn ber mann.
Kannski trúartáknið okkar krossinn geti verið leiðbeinandi tákn fyrir trúleysingja líka ;0)


En gammel fransk kors, gammelt vindue og et par gamle bageform
kan godt udgøre det smukkeste stilleben.

Gamall franskur kross, gamall gluggi og tvö gömul bökunarform.....
í stofuglugganum mínum.

søndag 20. mars 2011

Dejlig fornyelse

Nokkrir púðar frá HM home fengu að fylgja mér heim þegar HM opnaði búð með HOME deild hér rétt hjá. Mæli eindregið með þeim, hægt að panta á netinu. Sígildir fallegir og vandaðir og ekki spillir verðið. Vona að aðbúnaður í verskmiðjum þeirra sé í lagi. Svona fyrir samviskuna. Oft þarf ekki svo mikið til að allt smelli saman. Er virkilega ánægð með litasamsetninguna.

Forleden opnede HM en HOME afdeling ikke så langt her fra og nogle nye pudebetræk fik følge med mig hjem. Nogle gange skal ikke så meget til for at opleve en fornyelse. Synes de fik det hele til at falde på plads, i hvert fald farvemæssigt. Jeg er i hvert fald SÅ fornøjd.

Faldt platask for denne brune som har en vidunderlig farve
og var lige farven der bandt det hele sammen.

Kolféll fyrir brúna púðaverinu, sem er úr mjög kröftugu efni og
var akkurat í litnum sem bindur allt saman.

Forskellig tekstur og naturfarver. Måske kedeligt for nogen,
men jeg er rigtig fornøjd.
Mismunandi áferð og dempaðir jarðlitir er akkurat eins og ég vil hafa það.
Góð leið til að binda saman grátt og brúnt sem sumum finnst alls ekki passa saman.
Það er mesta vitleysa, það þarf bara að gera það rétt.

Hér sést greinlega að rauði skermurinn hefði aldrei gengið.
Kertastjakarnir eru úr tini, mjög klassískt form og keyptir í flottustu búð Álaborgar sem heitir Inside Living. Alltaf jafn sæl með þá.
Gömul kista þjónar okkur á 3 vegu.
Sem sófaborð, geymsla fyrir lopann minn og svo fagurfræðilega.
Hver sagði að brúnt og grátt passaði ekki saman ? Ekki ég.

En meget gammel kiste bruges som sofabord.

Måske ikke lige det mest praktiske, men smukt.

torsdag 17. mars 2011

En ny lampeskærm?

Ja, for noget siden fik jeg nok af den gamle røde lampeskærm som blev købt pga formen. Planet var at jeg skulle strikke en ny en, grov af hvid uld. Men efter 3 forsøg gav jeg op. Det var ikke sådan som den skulle være, for jeg var aldrig tilferds. Men denne gamle løber af blunde, som jeg købte på loppemarket forleden inspirerede mig lidt, så jeg prøvede at kaste den over, ja samt en mundservet i hør. Selvfølgelig skal den ikke blive sådan for altid, men min hjerne arbejder stadig på designet og imens får den ser sådan her ud.

Fyrir nokkru fékk "rauður" að fjúka og ég byrjaði að prjóna nýjan skerm. Byrjaði svo aftur, ja og aftur en var aldrei ánægð. Þannig að ég lagði prjónana frá mér, amk hvað þetta verkefni varðar. Hef reyndar prjónað næstum heilan kjól síðan og gott ef ekki kæmi til greina eitthvað í þeim dúr. Mig langar amk í eitthvað fallegt og gamaldags, annaðhvort hekla blúndu eða prjóna fallegt munstur. Ef einhver lumar á fallegu mynstri, væri það vel þegið ;0) (blikk blikk) En þangað til fær lampagreyið að vera svona. Mér finnst hann nú skárri svona en rauður.

Það er hægt að klikka á myndina til að stækka hana, það er svo oft sem það er ekki hægt og ég veit ekki hvað það er sem ræður því processinn er alltaf sá sami. Er einhver þarna úti sem er klókari en ég og veit það?

tirsdag 15. februar 2011

Svær fødsel... det modsatte hjørne.

Góðan daginn hér.
Eitthvað lætur lampaskermurinn á sér standa. Það reyndust ekki orð að sönnu "allt er þegar þrennt er" í þetta sinnið. Þetta ætlar að verða erfið fæðing. Þess vegna bara mynd úr hinu horninu í dag. Held þó að allir sem hingað hafi kíkt eitthvað að ráði hafi nú séð þetta allt áður en læt þetta flakka... Myndin geymir nokkra af mínum uppáhalds hlutum, langömmuskápinn minn eins og ég kalla hann, madonnuna mína og fallega gamla spegilinn minn. Ég nýt, vona að þið gerið það líka.
Bestu kveðjur úr bikkju - kuldanum í Oslo. (bikkja er hundur á norsku - fyndið með þessi norrænu mál ;0)
Dagný
Það má gjarnan koma vor, þó ekki nema fyrir Ólífutréð mitt,
lítur heldur ræfilslega út. En það tórir hér í myrkrinu og hitanum.
hej, jeg skulle egentlig være færdig med lampeskjermen, men dette ser ud til at blive en hamrende svær fødsel. Derfor billeder fra det modsatte hjørne fra stuen, der har jeg nogle af mine kæreste ejendele. Mit oldemorsskap, madonnaen min og mit kære gamle smukke spejl.
Som I kan se på billedet må det snart blive forår, i hvert fald for mit stakkels Olivientræ.
hilsner her fra bikkjekulden her i Oslo. Synes de er så morsomt med bikkje kulde fordi på islandsk er bikkje en hest der ikke rigtig gidder or kan løbe;0)

ha det godt
Dagný


torsdag 13. januar 2011

Nýtt ár nýjir tímar......

EN ég sakna gamla borðsins míns sem ég seldi og gömlu íbúðarinnar....

Nyt år og nye timer men jeg savner min gamle lejlighed og mit gamle bord...

tirsdag 16. november 2010

Rauður lampaskermur!

Já, þú last rétt. Það hefur rauður lampaskermur inn í stofu til mín. Gamall að sjálfsögðu og keyptur fyrir sama og ekki neitt. EN, hann er rauður! Ja, það væri svo sem ekki til frásögu færandi, nema hvað ég þoli bara ALLS ALLS ekki rauðan. Ástæðan sést hér.
Fyrir all mörgum árum, var ég svo orkulaus einn veturinn og fékk þessa líka svaka þörf fyrir rauðan OG málaði eldhúsinnréttinguna mína rauða! Mæli ekki með því.
Í dag á ég heila 3 rauða hluti og alla dökkrauða, það er þessi skermur, jesús og svo piparkvörnin mín. Hef reyndar oft hugsað um að mála hana og enda sjálfsagt með að gera það.

Skermurinn var reyndar bara keyptur út á formið og grindina, ætlaði að prjóna á hann flík, en skellti honum á nýja loppislampann minn og fannst hann passa svona líka hrikalega vel, þrátt fyrir litinn. Ætli hann fái ekki að vera þarna þangað til ég fæ leið, sem verður svona ca. eftir jól.

Hafið það gott þarna úti og njótið jólaundirbúningsins.
Ja, en rød lampeskærm har fundet sin vej ind i min stue. Og hvorfor er det mærkeligt? Ja, for nogle år tilbage fik jeg en trang til rødt og mine køkkenskabe fik nogle omgange rust rødt eller svensk rødt. Det er grunden til at det eneste røde jeg kan lide er rødvin og jo, min elskede jesus. Udover jesus og lampeskærmen, findes der kun én anden rød ting i mit hjem. Det er min pepperkværn som jeg mange gange har tænkt over at male og ender nok med.
Det frygtlige køkken jeg vidner om, kan man se her.

Lampeskærmen blev selvfølgelig kun købt pga. formen og skal have en strikket kåbe på et senere tidspunkt, nok når jeg ikke kan holde den ud længere ca. efter jul.

ha det godt derude.

lørdag 6. november 2010

Huggulegheit á laugardagskvöldi!

Lørdagaften og hygge, har fyret op i pejsen og maden venter på bordet. Nu skal vi hygge og kose os lidt. Lavede en lille krans af falmende efterårs blade i morges. Dem har vist nok af - nu for tiden.

Ha´det godt!

Það á að hafa það notarlegt hér í kvöld. Búið að kveikja upp í arninum, frúin alveg sjálf og það logar skært! Maturinn bíður, maðurinn líka, var að koma heim úr vinnu. Best að gefa honum að borða og kósa sig svo. Gerði smá krans í morgun úr haustlaufum, það er víst nóg af þeim núna.

Vona að allir eigi huggulegt kvöld!
Er þetta ekki bara huggulegt?

Ekki fæ ég hreindýrahaus yfir arininn, eins og ég svo mjög gjarnan vildi.
EN þessi 2 voru svo sæt, eru nú hugsuð á aðventubakkann en punta þarna þangað til!

Það er hér sem við huggum okkur litla fjölskyldan.
Ekkert er gestaherbergið, en gestarúm í stofunni.
Mjög sniðugt verð ég að segja að hafa rúm í stofunni.
Það kvartar amk enginn hér heima.

fredag 5. november 2010

Lampi og stóll!

Det at jeg har en svaghed for patina er ikke nogen hemmelighed. Kunne derfor ikke modstå denne ensomme stol i bruktbutikken. Industri-lampen er en nødvendighed hvis man overhoved skal kunne strikke eller lave et eller andet om aftenen, uden oversvømmelse belysning.

ha´en dejlig god helg


Það virðist loða við mig að búa við annað hvort flóðlýsingu eða myrkur. En ekki lengur. Eftir að hafa setið í 2 og hálft ár í myrkri öll kvöld á Íslandi og ergja mig yfir því að geta ekki prónað, ákvað ég strax og ég flutti hingað inn að hér skyldi ég eiga mér almennilegan prjónalampa.

Bóndinn fékk val, annað hvort byggi hann við flóðlýsingu á kvöldin eða ég keypti mér lampa. Keyptu þér lampa, var svarið! Og ég gerði það, notaðan industri lampa sem þolir heil 500 wött, í smá stund amk. Hann get ég hækkað og lækkað að vild og snúið skerminum í allar áttir. Enda prjóna ég meira á kvöldin núna! þ.e. þegar hausinn leyfir.
Og stóllinn, ja, við höfm búið við stólavandamál undanfarna mánuði. En ekki lengur. Eins og ég er veik fyrir stólum hef ég bara ekki fundið neinn, nema 2 um daginn og svo þessa elsku. Eldgamall sænskur stóll sem greinilega hefur upplifað sitt lítið af hverju !

góða helgi

Það besta er að hann passar alveg fullkomlega við hina 2 stólana mína.
Ég er voða mikið fyrir að blanda saman, en það er ekki sama hvernig það er gert.
Vist er den fin!


tirsdag 27. april 2010

onsdag 7. april 2010

Mine helt nye gamle vinduer fra Norge

Min kære svåger har fundet nogle helt fantastiske vinduer til mig og min søster sørget for at få dem sent til mig. Oh hvor blev jeg glad. Hoppede og dansede rundt i min stue og kunne ikke vente med at få dem stillet op. Da jeg hentede dem til min søsters svigemor, kunne hun ikke lade være med at spørge hvad jeg egentligt skulle med disse her. Pynte selvfølgelig, svarede jeg men måtte forstå på hendes ansigt at det ikke var en selvfølge!
Men glad er jeg i hvert fald og tusind tak siger til alle der har medvirket til at jeg fik min drøm i opfyldelse.

Minn elskulegi mágur fann nokkra gamla slitna glugga fyrir mig í Noregi og elskulegur vinur hans var svo sætur að leyfa þeim að fljóta með sér til Íslands á leið sinni í páskafrí. Ég var svo glöð þegar ég fékk þá, að ég hoppaði um stofuna og dansaði. Læt hvorki athugasemdir eins og hvað ætlarðu eiginlega að gera við þetta? eða hvar ætlarðu að hafa þá? Eins og bróðir minn sagði þegar ég benti honum á þá, stolt búin að stilla þeim upp.
Kærar þakkir allir sem hjálpuðu til við að fegra heimili mitt.
Så glad ! Der står 2 af dem på mit spisebord i stuen.
Frúin á heimilinu er svo hamingjusöm. Tveimur gluggum
var stillt upp á borðstofuborðinu.

Og en i vinduet sammen med en spejl og en ramme.
Jeg har så en stadig stående i Oslo!
Einn er úti í glugga, með spegli og tómum ramma.
Passar vel við lampann, smá industry look.



Har i ojeblikket lånt min brors kamera,
det gør altså en forskel at ha en ordentlig til at tage billeder med.
Jeg må bare ha en, gerne brugt bare en ordenlig så jeg kan tage billeder.
Disse fantastisk smukke roser nyder jeg nu i snart 2 uger.

Fékk lánaða myndavél bróður míns þannig að nú get ég tekið betri myndir.
Þessar yndislegu rósir eru búnar að standa lengi.

OG selv om påsken er over har jeg 2 forsynthia grener.
De er skønne selv om de er GULE

ha det godt alle sammen.

Þó svo að páskarnir séu búnir má enn njóta Forsynthiunnar.
Falleg þó gul sé.
Hafið það gott allir sem nennið að kíkja hér inn.
Bless i bili.







lørdag 16. januar 2010

Fantastisk smukke kogler


Nenner ikke at pakke dem væk, de er såå smukke!
God weekend!
Könglarnir sem puntuðu um jólin á Silkifurunni fá að vera áfram, tými hreint ekki að pakka þeim niður.
Það er hægt að verða ástfangin af hreint ótrúlegustu hlutum;0)

tirsdag 12. januar 2010

Forandring fryder

Jeg længes altid efter forandring når julen er pakket bort. Denne gang flyttede jeg bla. mit højtelskede oldemorsskab ud i vinduet. Rigtig fornøjd med resultatet.

Ha, det godt alle sammen, tak for besøget og velkommen igen.
Þegar nýja árið gengur í gang fyllist ég þörf fyrir breytingu. Sundum nægir að tæma svolítið hjá sér en núna VARÐ ég hreinlega að breyta aðeins. Íbúðin mín er ekki beint hönnuð í það þar sem einungis um mjög fáa veggi er að ræða en þeim mun fleiri gluggar, sem að sjálfsögðu var ein af ástæðum þess að þessi íbúð var valin. Hún er svo sannarlega björt. Það er þó ekki enn þannig hjá mér eins og einni íslenskri í Svíþjóð sem hefur fengið þær athugasemdir að fólk fái snjóblindu við að koma inn ;=)

Hugsi hugs, hvar get ég sett minn heittelskaða langömmuskáp????
Ja, út í glugga.... en það er alltaf spegill fyrir ofan hann, eða á honum, annars er hann svo tómur, ja... hugs hugs, ég hengi bara spegilinn á gardýnustöngina. Og svo var bara haldið áfram og ég verð að segja að nú get ég enn og aftur brosað þegar ég horfi á skápinn minn. Það klæðir hann bókstaflega allt og hann fer vel allsstaðar.

Útiker með stórum hvítum grenikönglum , ryðgað kökuform á hvolfi, antík franskur kross og glerklukka.
Elska gler og spegla, gefa aðra dýpt og ný sjónarhorn í innréttinguna.
Kökuform fyrir 150 - úr Góða Hirðinum
Útsýnið frá sófanum, sinkbalinn geymir prjónadót og teppi sem hægt er að skella yfir sig meðan maður sötrar kaffibollann.



Og elsku besti litli langömmuskápurinn rúmar næstum allt sparistellið,
sem keypt var í Danmörku fyrir heilar 10.000 isl kr.
15 manna matar og kaffistell. Elska að gera góð kaup.

Læt þetta nægja í bili, hafið það gott,
takk fyrir heimsóknina og velkomin aftur.






onsdag 9. desember 2009

Solens magiske stråler

Det trænger man godt nok til her i denne mørke tid hvor man går på arbejde i mørket og kommer hjem i mørket. Elsker når solen skinner ind af vinduerne om vinteren trods man kan se hvert ét eneste støvkorn.

Elska þegar sólin skín innum gluggana núna í desember, þegar myrkrið er allsráðandi. Maður fer til vinnu í myrkri og kemur heim í myrkri. Þá er gott að eiga svona myndir að ylja sér við.

torsdag 26. november 2009

Mit nyeste fynd.

Nu er jeg klar til at flytte hjemmefra. Fandt denne elske forleden og blev fuldstændig forelsketog rørte ikke jorden de næste mange timer. Et kuffert med den fedeste patina ever!!!
Så smuk at jeg smiler hele vejen rundt hver gang jeg kigger på den.

Nú get ég loksing flutt, fann þetta frábæra koffort í Notað og nýtt og varð ástfangin.
Það er æði.Þvílík og önnur eins patína er vandfundin. Alveg yndisfallegt hvað sem hver segir.
Ég brosi allavega hringinn í hvert sinn er ég lít á það.



Det var alt for denne gang, tusind tak for jeres søde kommentar, de varmer. Synes det er så herligt med denne blogverden hvor jeg bliver sååå inspireret hele tiden.

Þetta var allt í þetta sinnið. Kærar þakkir fyrir fallegu kommentin ykkar sem nennið að staldra við og skrifa nokkur orð. Það gleður mitt litla hjarta. Þetta blog hefur gefið mér mikið og er einskonar útrás fyrir áhugamál mitt númer eitt - gamalt drasl ;=))) nei segi bara svona.

søndag 4. oktober 2009

En tidlig morgenstund - en søndag morgen.

Vognede alt, alt for tidligt i moges. Klokken 5 og kunne ikke sove videre. I stedet for at ligge vende mig fra side til side, tog jeg ned og tændede lidt lys og hyggede. Billederne er fra min stue og spisestue.
Et kig fra gangen ind til spisestuen. Endnu en gang, mit højt elskede oldemorsskab.
Vores sofakrog. Ikea sofa som næsten alle jer bloggere har, en god en til få penge. 
Gamle grønne stoler, samt 12 år gammelt hvidmalet bord, som man nemt kunne holde rock konsert på. Rigtig stærkt og med god højde for benene!!
Min engel, skønt patineret. Min mand er ikke helt dus med den, kan ikke lide buttede børneengle med små vænge, som de aldrig nogen sinde kunne flyve med, var de virkelige ;-))

Gammel netkugle som blomsterpot, fundet på mine besteforældres gård og rustik lugte. 
Ser frem til når jeg kommer til det at lave en radiator skjuler. Radiatorer er ikke lige fremt skønne men nødvendige, i det mindste her i norden. 

Den anden  vindue  i stuen. Det er godt med lugte i vindueskarmen, det er så hyggeligt med levende lys men ikke så godt med almindelige stager pga. træk fra radiatoren. 

En islandsk uldtrøje til min mand, som venter på det sidste håndtag. Jeg skal vist også få malet mine gulvliste. De var malet gylden af den tidligere ejer og kun malet over med almindelig vægmalning, så nu skal jeg have skrabet alt malningen bort og malet dem ordentlig. 


Det var alt for denne gang, ha det godt alle sammen,
tusind tak for besøget og velkommen igen! 






Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...