Sider

fredag 31. desember 2010

Gleðilegt ár!

Gangið hægt um gleðinnar dyr! Takk fyrir innlitið á árinu sem er að líða.

Godt nyt ár. Som vi siger i Island, gå varsomt gennem glædens dør, ved ikke om der findes lignede ordsprog på dansk.
Hver veit nema við mökrum ný spor á komandi ári?

torsdag 30. desember 2010

jól í eldhúsglugganum...

Svolítið dökkar myndir en mér verður vonandi fyrirgefið

jul i køkkenvinduet. Billederne er lidt mørke, men sætter dem ud på bloggen alligevel.
I må forgive mig.


smukke gamle kakebox
falleg kökubox, auðvitað gömul og hvít.


tirsdag 28. desember 2010

Heimabakað jólaskraut

Hjemmebagt julepynt
Rúgbrauðshjarta- gróft og flott
Rugbrødshjerte - rustik og flot
Piparkökur skreyttar af heimasætunni
Peperkaker dekoreret af min pige

søndag 26. desember 2010

annar í jólum

Jólin líða svo hratt, liðin fyrr en varir, munið að njóta.

fredag 24. desember 2010

Gleðileg jól

Ville bare ønske jer alle sammen Glædileg jul.



onsdag 22. desember 2010

Á síðustu stundu....


Husk at have hjertet med. Det er tid for kærlighed og varme tanker.
Munið að hafa hjartað með í því sem gert er. Jólin eru tími kærleika og hlýrra hugsana.

Hjerte, engler, gammelt vindue , oliventræ og en lille fugl som også sidder og venter på julen.
Hjarta, englar, gamall gluggi, ólívtré og lítill fugl sem situr og bíður jólanna.
Gott að hafa pappírinn til taks og ekki verra að allt dótið sem fylgir þessum tíma líti vel út.
Godt at have alt man skal bruge for at pakke smukt ind lige ved hånden...
ja og helst smukt tilrettelagt.

tirsdag 21. desember 2010

Pynt med naturmateriale

Synes altid det er smukkest at pynte med naturmateriale. Vi kan jo ikke gøre bedre end selve naturen! Nyd forberedelserne, selv skal jeg lave nogle flere kranse, dem kan man vist ikke have for mange af, har jeg fundet ud af ;=)

Mér finnst alltaf fallegast að punta með efni úr náttúrunni sjálfri. Við gerum víst ekki betur en hún. Ég hef svo oft furðað mig á bæði þeirri fullkomnun sem þar er að finna en einnig hnignun sem mér finnst fallegust af öllu. Ef eitthvað hnignar ,"patinerast", með stæl er það náttúruefni.
Munið nú að njóta jólaundirbúningsins. Sjálf ætla ég að gera nokkra fleiri kransa. Hef komist að því að það er ekki hægt að eiga of marga þannig ;=)
Et af mit yndlings blomst, selveste julerosen.
Eitt af uppáhaldsblómunum mínum sjálf jólarósin.

Kanil, velduftende og dekurativ
Kanelstangir, bæði vellyktandi og flottar.
Greni og börkur
Grane og bark
Smá kvistir bundnir í búnt, ég veit ekki með þig en mér finnst það flott!
små kviste bundet til et lille bundt, smukt uden tvivl!

mandag 20. desember 2010

Skrautið bíður!

Nú líður að því að sjálft jólatréð verði tekið inn. Ég verð að viðurkenna að það er ekki lítið sem ég hlakka til að skreyta það. Hjá mér er það aldrei eins frá ári til árs. Í ár verða fallegar kúlur úr "silfri fátækamannsins" eða fattigmanssølv eins og það heitir á góðri útlensku. Svo er ég búin að baka rúgbrauðshjörtu, taka gömlu piparkökuformin mín til. Einnig ætla ég að binda smá búnt af kanelsöngum og litlum greinastubbum. Ég er viss um að þetta verður flottasta jólatré í heimi!

Nu skal træet snart ind og pyntes. Pyntet venter så smukt på mit lille bord. Får nok ikke at stå der længe, fordi dette lille IKEA altan-klapbord, er det eneste spisebord vi har i øjeblikket. Har endnu ikke fået anskaffet mig et bord. Jeg skal nemlig selv lave et, har ikke set noget jeg vil på markedet og jeg vil gerne, at det ikke er noget jeg ser i hvert andet hjem!
Granen i år får nogle kugler af fattigmanssølv, rugbrødshjerter, pepperkageform, kanelstanger og andet naturmateriale. Jeg glæder mig helt vildt!

Af hverju ekki að stilla puntinu fallega upp meðan það bíður þess að fá sinn endanlega stað?
Hvorfor ikke lave et lille stilleben med alt pyntet. Det er meget dekorativt.
Kanil, greinar og falleg bönd.
Rúgbrauðshjötu og kökuform
Hinar dásamlega fallegu jólakúlur í fínu súputerrínunni minni.
Auðvitað þarf líka að skreyta kertastjakana líka.
Þessir hafa nú verið geymdir inn í buffetskáp frá því ég flutti, en nú fá þeir að koma fram og puntast með fallegu bandi, greni og litlu hjarta.




lørdag 18. desember 2010

Prikken over i-et

Relegiøse bilder...
Altid smukt.
Elsker min gamle spejl som er så fantastisk flot patineret,
at den er som abstrakt maleri,
jeg ser nye bilder i den hver gang jeg ser på den.
Meget bedre end egen refleksjon...
den er man for længst blevet lei av.

Trúarlegar myndir eru alltaf fallegar sem punturinn yfir i-ið.
Elska gamla spegilinn minn sem er svo dásamlega patineraður eins og það heitir á fínu máli.
Hann er eins og besta abstrakt málverk, nýjar myndir í honum í hvert sinn sem maður lítur á hann. Maður fær ekki leið á slíku.
Miklu betra en eigin spegilmynd sem ég er auðvitað komin með hundleið á fyrir löngu.


lørdag 11. desember 2010

Uppáhalds jólasokkur...

Gjöf frá vinkonu fyrir mörgum árum.
En yndlings julestrømpe, en gave af min veninde for mange år siden.


søndag 5. desember 2010

Julens blomster

Den dejlige, dejlige amaryllis er en nødvendighed til jul. Jeg har bare lige det problem her hjemme, at min lejlighed er så frygtlig mørk, at den bliver alt, alt for lang i det. Derfor blev jeg nød til at klippe den af. Men den ser lige skøn ud i en smuk vandkande med et par nøgne birkegrene.

Fyrir jólin eru nokkur blóm algjör nauðsyn. Þar á meðal er amaryllis, auðvitað hvítur þar sem rautt fær ekki mikið að koma inn fyrir mínar dyr, ekki einu sinni fyrir jólin. Þar sem birtan er ekkert til að hrópa húrra fyrir hér í þessarri íbúð verður laukurinn svo hár og renglulegur að hann heldur ekki haus, varð þess vegna að klippa hann af. EN hann er ekkert síðri í fallegri vatnskönnu með birkigreinum sér til stuðnings.

Juletræets pynt får vente i en skål sammen med lidt gran og en hvid hyasint.
Jólakúlurnar bíða trésins í skál með hvítri hyasintu og smá greni.
Som så mange andre har jeg plantet en hyasint i en sovsekande, synes det er så smukt.
Plantaði blárri hyasintu í sósukönnu eins og svo margir. Hún blómstrar hjá mér í dag og er orðin ansi há og vinstrisinnuð sökum birtuleysis.

torsdag 2. desember 2010

Stormur í aðsigi!

I Island har vi ikke én julemand men 13 stykke som alle har deres eget navn som henviser til deres karektertræk. Nu har vi fået endnu en, jeg opdagede den 14. i Norli her forleden. Han fik selvfølgelig følge med mig hjem og blive mandens første adventsgave. Han har enda fået et navn, Storm og kigger man nøje, eller måske ikke så nøje for det springer faktisk i øjnene, at den lille stakkel har været ude i årets værste storm!


Já gott fólk, nú þarf að setja skóinn deginum fyrr út í gluggann til að skúffa ekki þennan litla karl. 14. jólasveinninn er kominn til sögunnar, Stormur heitir hann og ber nafn með rentu ef vel er gáð. Það er eins og hann sé staddur í hávaða roki karlanginn. Hann var uppgötvaður hér í í bókabúð einni og fékk að vera fyrsta aðventugjöfin til karlsins míns í ár.


Hér sést vel ástæða nafngiftar kauða.
Hann er hrikalegt krútt.

Já hann er kominn til ára sinna þessi elska, er farinn að grána vel - en mér hefur alltaf fundist það mjög sjarmerandi og bíð spennt eftir að minn kall fari að grána eitthvað að ráði ;=)

Stærðin er ekki að þvælast fyrir honum greyinu, þannig að það verður leikur einn að komast niður strompinn þrátt fyrir háan aldur!

Men trods en åbenlys høj alder, med alt det grå skæg, har han ingen problemer med at komme ned skorstenen, for størrelsen er ju ikke lige frem en forhindring.

tirsdag 30. november 2010

Årets advents"krans"

Mine adventskranse er aldrig ens fra år til år. Tidligere var det en traditionel grankrans med de forskellige pynt, men ikke de sidste år. I år har jeg placeret 4 lys på et gammelt vindue som jeg har stående. Der under har jeg smidt lidt gran, ovenpå et par rensdyr, nogle kogler jeg plukkede i efteråret og ligeledes rådhusvin - vindruer fra en nabo som havde alt for mange ;=)
Bånd fra house doctor og nogle zink sifrer, så jeg lige ved hvad for et lys jeg skal tænde. Det betyder også at det ikke bliver snydt som sidste år, da alle lysene blev tændt på en gang! Nu må jeg vente.

Aðventu "kransinn" í ár er ekki krans heldur nokkur kerti á gömlum glugga sem ég á. Undir glugganum er smá greni og ofaná stórir könglar sem ég tíndi í haust og lítil vínber af ráðhúsvínvið frá einum nágrannanum sem átti alltof mörg ! Tvö sæt hreindýr fá að punta og kanilbúnt sem ég er reyndar með sem skraut allt árið. Það tók sinn tíma að ákveða með hvaða bandi ég ætti að binda zink tölurnar á kertin, lúksusvandamál ;=). En að lokum valdi ég þessi mjóu brúnu og hvítu, þau eru frá House doctor. Já, ég er svolítið veik fyrir fallegum borðum og blúndum og núna er loksins hægt að finna falleg bönd þar sem ég bý ekki lengur á fróni. Það var andskotanum erfiðara að finna eitthvað nothæft þar. Afsakið orðbragðið en satt engu að síður!

Læt þetta nægja að sinni og bið ykkur vel að lifa og njóta nú aðventunnar.

Nú verð ég að takmarka mig við að kveikja á kertunum eftir settum reglum, hef nefninlega svindlað undanfarin ár og kveikt á öllum 4 í einu. Það er bara svo miklu fallegra. EN, ekkert svindl í ár!

Tak for besøget!

tirsdag 23. november 2010

Zink sifrer

Min madonna har fåt passe på disse tal i zink som nu snart skal brukes til adventkransen.

Keypti þessi litlu skilti með tölunum 1-4 fyrir all nokkru, þau eiga að vefjast um kertin á aðventukransinum, þannig að hlutverki madonnunar sem geymslustaður fyrir þau er senn að ljúka. Hún fær kannski að halda á einhverju öðru. Hver veit.

tirsdag 16. november 2010

Rauður lampaskermur!

Já, þú last rétt. Það hefur rauður lampaskermur inn í stofu til mín. Gamall að sjálfsögðu og keyptur fyrir sama og ekki neitt. EN, hann er rauður! Ja, það væri svo sem ekki til frásögu færandi, nema hvað ég þoli bara ALLS ALLS ekki rauðan. Ástæðan sést hér.
Fyrir all mörgum árum, var ég svo orkulaus einn veturinn og fékk þessa líka svaka þörf fyrir rauðan OG málaði eldhúsinnréttinguna mína rauða! Mæli ekki með því.
Í dag á ég heila 3 rauða hluti og alla dökkrauða, það er þessi skermur, jesús og svo piparkvörnin mín. Hef reyndar oft hugsað um að mála hana og enda sjálfsagt með að gera það.

Skermurinn var reyndar bara keyptur út á formið og grindina, ætlaði að prjóna á hann flík, en skellti honum á nýja loppislampann minn og fannst hann passa svona líka hrikalega vel, þrátt fyrir litinn. Ætli hann fái ekki að vera þarna þangað til ég fæ leið, sem verður svona ca. eftir jól.

Hafið það gott þarna úti og njótið jólaundirbúningsins.
Ja, en rød lampeskærm har fundet sin vej ind i min stue. Og hvorfor er det mærkeligt? Ja, for nogle år tilbage fik jeg en trang til rødt og mine køkkenskabe fik nogle omgange rust rødt eller svensk rødt. Det er grunden til at det eneste røde jeg kan lide er rødvin og jo, min elskede jesus. Udover jesus og lampeskærmen, findes der kun én anden rød ting i mit hjem. Det er min pepperkværn som jeg mange gange har tænkt over at male og ender nok med.
Det frygtlige køkken jeg vidner om, kan man se her.

Lampeskærmen blev selvfølgelig kun købt pga. formen og skal have en strikket kåbe på et senere tidspunkt, nok når jeg ikke kan holde den ud længere ca. efter jul.

ha det godt derude.

søndag 14. november 2010

Fínar jólagjafir

Disse små huse gav jeg min mor og svigemor i julegave sidste år. Jeg var så glad for dem at jeg selv blev nød til at "pruvekøre" dem lidt. De er faktisk endnu smukkere end på billedet, helt mat og mønstret fantastisk. Det eneste man skal passe på er at de bliver frygtlig varme.

ha´det godt!

Gaf þessi yndislegu hús í jólagjöf í fyrra. Var svo ánægð með þau að ég tók þau strax uppúr kössunum og naut þeirra nokkur kvöld og vonaði að enginn kæmi í heimsókn. Þau fengust þá í Heimili og hugmyndum, bestu búð á Íslandi, eru sennilega til þar aftur í ár, amk hafa þau verið það vinsæl að þau hafa selst strax upp. Þannig að þetta er hugmynd að gjöf þá er um að gera að koma sér á staðinn sem fyrst.

Hafið það gott!

tirsdag 9. november 2010

Sætir sveinkar!

Så disse flotte nisser forleden på en svensk netbutik, de er helt fantastisk flotte og ret store, nemlig henholdsvis 30-40 og 50 cm og koster ca. 300-400 svenske kroner.

Hef aldrei verið jafn spennt fyrir jólunum og einmitt í ár. Sá þessa yndislegu sveinka á sænskri netbúð um daginn. Þeir eru nefninlega mun stærri en maður gerir sér grein fyrir eða 30-40- og 50 cm háir. kosta nokkra hundraðkalla, þe sænska. Sé þetta sem alveg tilvalið föndurverkefni með okkar frábæru ull. Væri nú til í að hafa hjá mér þennan fulla ruslapoka sem ég á af ull til þæfingar heima á fróni.


Der fantes også en med røde hue, men idet jeg ikke er særlig rød blev de ikke klistret ind på min computer ;=)

Líka til með rauða húfu en þar sem ég er nú ekkert sérlega rauð hafði ég ekki fyrir því að kopera þá mynd inn á tölvuna mína.

hafið það sem best,
ég ætla núna að hugga mig með jólabókina mína sem var að koma!

mandag 8. november 2010

Julemagasinet er udkommet..

Jeg tænkte på at kigge ind i narvesen i dag og se om Jeanne d´arc magasinet var udkommet selv om det først skulle være i handelen den 12., og ja det var det - så nu kan jeg hugge lidt med juleinspiration.

Datt í hug að kíkja í blaðabúðina hér í nágrenninu þegar ég átti leið hjá í dag og athuga hvort blaðið mitt, jólablaðið, væri komið út. Og já, þær eru sennilega að bæta upp fyrir að hafa verið of seinar síðast, því blaðið átti fyrst að koma út þann 12. Nú get ég huggað mig aðeins og planað jólin enn betur.

hafið það sem best og takk fyrir kommentin, þau ylja hér í kuldanum!

søndag 7. november 2010

Stollen ...


Stollen julebrød er en af de ting der simpelhen er nødvendige før hver jul. For nogle år siden, da jeg boede i Danmark, fandt jeg en bog på biblioteket som hed Politikens bog om vinter og jul. Den er helt fantastisk - da jeg så skulle købe den, var den helt udsolgt og åbenbart har de ikke udgivet den igen endnu, for den er stadig udsolgt. MEN den findes på svensk og fordi jeg er sådan set lige glad med hvilket nordisk sprog jeg læser - udover finsk selvfølgelig - bestilte jeg den i morges på capris. Nu skal jeg nemlig til at prøve om jeg kan finde ud af at lave et peperkagehus - det vil vise sig. Men jeg fik sådant lysten til stollen da jeg så bogen - min stollenopskrift stammer netop derfra. Stollen med Grand mariner blev det til- intet koniak her i huset!

Fann loksins bókina sem mig er búið að langa í í fleiri fleiri ár en hefur verið uppseld í Danmörku. Auðvitað er hún sænsk og heitir Vinterens goda ting og er algjörlega bráðnauðsynleg að eiga . Þaðan kemur stollenuppskriftin sem ég nota. Varð því að baka mér stollen í morgun - en nú með grand á ekki koníak, en það kemur ekki að sök get ég tjáð ykkur. búin að háma í mig þannig að ekki grennist ég í dag ;=)
Et must have!

Man skal give sig god tid til denne brød.
Alt klart nu er det bare at blande det sammen.

Allt hakkað og klárt tilbúið í blöndun!

Det hæves et par timer og så en time til når dejen er formet.

Brauðið hefast í svona um 3 klst samtals!
Enga óþolinmæði hér
Men så dejligt når det står spiseklart.

Algjör dásemd þegar það loksins er tilbúið!
Er eitthvað jólalegra en fallegt stollenbrauð?

Hafið það gott
og ekki vera hrædd við að setja komment, ég bít ekki í gegnum tölvuna ;=)

lørdag 6. november 2010

Huggulegheit á laugardagskvöldi!

Lørdagaften og hygge, har fyret op i pejsen og maden venter på bordet. Nu skal vi hygge og kose os lidt. Lavede en lille krans af falmende efterårs blade i morges. Dem har vist nok af - nu for tiden.

Ha´det godt!

Það á að hafa það notarlegt hér í kvöld. Búið að kveikja upp í arninum, frúin alveg sjálf og það logar skært! Maturinn bíður, maðurinn líka, var að koma heim úr vinnu. Best að gefa honum að borða og kósa sig svo. Gerði smá krans í morgun úr haustlaufum, það er víst nóg af þeim núna.

Vona að allir eigi huggulegt kvöld!
Er þetta ekki bara huggulegt?

Ekki fæ ég hreindýrahaus yfir arininn, eins og ég svo mjög gjarnan vildi.
EN þessi 2 voru svo sæt, eru nú hugsuð á aðventubakkann en punta þarna þangað til!

Það er hér sem við huggum okkur litla fjölskyldan.
Ekkert er gestaherbergið, en gestarúm í stofunni.
Mjög sniðugt verð ég að segja að hafa rúm í stofunni.
Það kvartar amk enginn hér heima.
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...